Námskrárvefur leikskóladeildar
Auðarskóli
  • Forsíða
  • Grunnþættirnir
    • Læsi >
      • Um læsi
      • Stoðir læsis >
        • Málrækt
        • Leikur
        • Umhverfi
        • Lífsleikni
        • Tækni
    • Heilbrigði og velferð >
      • Um Heilbrigði og velferð
      • Stoðir heilbrigðis og velferðar >
        • Hreyfing
        • Holl næring
        • Jákvæð sjálfsmynd
        • Daglegar athafnir
        • Slökun & hvíld
        • Umhyggja
    • Sköpun >
      • Um sköpun
      • Stoðir sköpunar >
        • Tónlist
        • Leikræn tjáning
        • Myndmennt
        • Leikir
        • Hefðir leikskólans
        • Menning samfélagsins
    • Jafnrétti >
      • Um jafnrétti
      • Stoðir jafnréttis >
        • Umræður
        • Umhverfi
        • Samskipti
  • Mat
    • Innra og ytra mat
    • Mat á námi og velferð
  • Leiðarljós
    • Leiðarljós leikskóla Auðarskóla
    • Leiðarljós í framkomu starfsfólks
    • Að örva þroska
  • Leikur og nám
    • Leikurinn
    • Námið
  • Samfélagið
    • Fjölskyldan og leikskólinn
    • Samvinna skólastiga

Að læra í gegnum leik

Leikur er órjúfanlegur þáttur bernskuáranna og þungamiðja leikskólastarfsins. leikur er sjálf sprottinn og börnum eðlislægur. þau leika sér af fúsum og frjálsum vilja og á eigin forsendum. Leikur getur veitt gleði og vellíðan en jafnframt falið í sér valdabaráttu og átök.

Leikur sem námsleið
Leikur er meginnámsleið barna. Hann skapar börnum tækifæri til að læra og skilja umhverfi sitt, tjá hugmyndir sínar, reynslu og tilfinningar og þróa félagsleg tengsl við önnur börn. Þegar börn leika sér saman mynda þau félagslega hópa og skapa eigin menningu. Þau taka þátt í lýðræðislegum athöfnum þegar þau setja fram eigin hugmyndir og þurfa jafnframt að skilja hlutina frá sjónarmiði annarra.

Í leik geta börn unnið með og gert tilraunir með hugmyndir sínar og öðlast nýjan skilning og nýja þekkingu. Í leik skapast vettvangur þar sem spurningar vakna og börn leysa vandamál sem upp koma, á eigin forsendum. Í leik eflast vitrænir og skapandi þættir. Leikurinn kallar á fjölbreytta notkun tungumálsins, hreyfingu, félagsleg samskipti og tilfinningatengsl. Leikur getur virkjað sköpunarkraft barna og löngun þeirra til að læra og afla sér þekkingar.
Stutt við leik í leikskóla Auðarskóla
Starfsfólk í leikskóla Auðarskóla styður við nám barna í gegnum leik á margvíslegan hátt, m.a. með því að:
•    Skapa fjölbreytilegt leikumhverfi og veita aðgengi að leikefni sem
     hvetur börn til að rannsaka, finna lausnir og skapa,
•    gefa í dagskipulagi leik nægan og samfelldan tíma,
•    gefa leik barna nægjanlegt rými svo að þau hafi svigrúm til að hreyfa
     sig og til að þróa leiki,
•    styðja við sjálfsprottnar athafnir barna og áhuga,
•    mynda tengsl við þau í gegnum leik með samskiptum,
•    vera vakandi fyrir þeim tækifærum sem upp koma í leik og nota þau til
     að kveikja áhuga barna og styðja við nám þeirra,
•    styðja við og efla jákvæð samskipti í leik,
•    sjá til þess að öll börn hafi tækifæri til þátttöku í leik úti og inni.
Leikskóli Auðarskóla 2016
Heimasíða Auðarskóla